2-4„Gylfaginning“ 23. kafli

Sjávarguðinn og konan úr fjöllunum

Hvers vegna geta þau ekki unað bæði við sjó og í fjöllum?

Njörður ræður ferðum vindsins og stillir sjó og eld. Til hans er líka leitað eftir hjálp við sjóferðir og veiðar. Hann ólst upp í Vanaheimi og var sendur til hinna goðanna þegar þau sömdu um frið við vani. Heimili hans heitir Nóatún. Kona hans, Skaði, er jötunsdóttir og vill helst búa í fjöllunum þar sem faðir hennar bjó.

Hann vill búa við sjóinn en hún í fjöllunum. Þau semja því um að dvelja 9 nætur í fjöllunum og 9 nætur við sjóinn til skiptis. En þegar Njörður kemur úr fjöllunum kveður hann um það hvað honum líki þau illa. Úlfavælið hafi ekki hljómað vel í eyrum hans miðað við söng svananna.

Skaði kann heldur ekki við sig á ströndinni. Á hverjum morgni vekja mávarnir hana með köllum sínum af sjónum. Hún kveður um að fuglagargið komi í veg fyrir að hún geti sofið við hafið. Síðar flytur Skaði aftur til fjalla. Þar fer hún um á skíðum og veiðir dýr með boga.

Mynd: Sjávarguðinn og konan úr fjöllunum