Freyr og Freyja
Til hvers fara þeir sem falla í bardaga?
Freyr og Freyja eru börn Njarðar, bæði fögur og máttug goð. Freyr ræður regni og sólskini og þar með því hvernig jörðin gefur af sér. Til hans er beðið um góða uppskeru og frið. Hann ræður líka því hvort fólk eignast auð.
Í Grímnismálum er sagt að goðin hafi gefið Frey Álfheim í árdaga. Það var tannfé, gjöf í tilefni af því að hann tók fyrstu tönnina. Freyja býr í Fólkvangi á himni. Þar ákveður hún hver fær hvaða sæti í salnum.
Þegar Freyja fer á vígvöllinn fær hún helming þeirra sem falla í bardaga. Hinn helminginn fær Óðinn. Þegar hún fer að heiman situr hún í vagni sem 2 kettir draga. Gott er að biðja hana um hjálp í ástamálum. Sjálf hefur Freyja dálæti á ástarljóðum.
Heimildir þessarar sögu (2)Freyr og Freyja
halfan val
hon kýss hverjan dag,
Helming þeirra sem falla í bardaga velur hún sér á hverjum degi.
„Grímnismál“ 14. erindi
„Gylfaginning“Gylfaginning
„Grímnismál“Grímnismál


Um myndina
Emil Doepler „Freyja by Emil Doepler“ 1905 Fallið úr höfundarétti Skoða upprunalegu myndina
Myndin var endurgerð í Super Nintendo-stíl eftir eldri mynd. Smelltu á hnappinn til að sjá eldri myndina.