3-15„Sigrdrífumál“ 1–4. erindi

Valkyrjan í logunum

Hvers vegna svaf valkyrjan?

Þegar Sigurður gekk upp á Hindarfjall sá hann ljós eins og eldsloga á fjallstindinum. Birtan náði alla leið til himins. Þegar hann kom nær sá hann virki úr skjöldum. Upp úr því stóð fáni. Inni í virkinu svaf manneskja í herklæðum.

Þegar hann tók hjálminn af sá hann að þetta var kona. Brynjan haggaðist ekki og virtist föst við líkama hennar. Sigurður skar hana upp með sverðinu frá hálsmálinu og niður. Síðan skar hann út að báðum handvegum. Þegar hann tók brynjuna af vaknaði konan.

Konan sagðist vera valkyrjan Sigrdrífa. Hún hafði fellt konung í bardaga þótt Óðinn hefði heitið honum sigri. Í refsingarskyni hafði Óðinn stungið hana svefnþorni.

Í Sigrdrífumálum réttir konan Sigurði drykkjarhorn með áfengi þegar hún vaknar. Í Skáldskaparmálum segist sofandi konan heita Hildur. Hún heitir líka Brynhildur.

Skoða bardagasenu
Mynd: Valkyrjan í logunum