Goð sem kunna á boga og skíði
Hverjum getur enginn jafnast á við í bogfimi og skíðaferðum?
Höður er blindur og afar sterkur. Sagt er að verk handa hans verði lengi í minnum höfð meðal goða og manna. Goðin óska þess að þau þyrftu aldrei að nefna hann á nafn. Þannig er honum lýst í Gylfaginningu.
Víðarr er þögull og gengur á þykkum skó. Hann er næstum jafnsterkur og Þór. Goðin treysta mjög á hann þegar á móti blæs. Í Grímnismálum er landi hans lýst sem vöxnu skógi og háu grasi.
Váli er hugrakkur í bardaga og afar flinkur með boga. Ullur er líka mikill bogmaður og leikinn á skíðum. Enginn stenst honum snúning í bogfimi eða á skíðum. Hann er fagur ásýndum og góður bardagamaður. Sagt er að gott sé að heita á Ull þegar menn þurfa hjálp í einvígi.
Heimildir þessarar sögu (2)Goð sem kunna á boga og skíði
Hann er bogmaðr svá góðr ok skíðfærr svá, at engi má við hann keppast.
Hann er svo góður bogmaður og skíðamaður að enginn getur keppt við hann.
„Gylfaginning“ 31. kafli
„Gylfaginning“Gylfaginning
„Grímnismál“Grímnismál


Um myndina
Ólafur Brynjúlfsson „NKS 1867 4to, 92v, Ullr“ 1760 Fallið úr höfundarétti Skoða upprunalegu myndina
Myndin var endurgerð í Super Nintendo-stíl eftir eldri mynd. Smelltu á hnappinn til að sjá eldri myndina.