2-2„Gylfaginning“ 21. kafli

Þór, hinn sterki

Hvaða gripir auka mátt Þórs?

Þór er sterkari en öll önnur goð og menn. Landið sem hann ræður yfir heitir Þrúðvangar. Þar á hann höllina Bilskírni, sem hefur hvorki meira né minna en 540 herbergi. Í Gylfaginningu er sagt að hún sé stærsta bygging sem menn þekkja.

Þegar Þór fer að heiman ekur hann í vagni sem 2 hafrar draga. Hann á líka dýrmæta gripi. Jötnarnir óttast sérstaklega hamarinn Mjölni, enda hefur hann brotið höfuð margra feðra þeirra og frænda.

Hinir gripirnir eru megingjarðir og járnglófar. Þegar Þór spennir um sig megingjörðunum eykst ásmegin hans. Járnglófana þarf hann að hafa þegar hann grípur um skaft Mjölnis. Í Gylfaginningu segir að enginn sé svo fróður að hann geti talið upp öll stórvirki Þórs.

Mynd: Þór, hinn sterki