Jötunninn og kýrin verða til
Hvernig urðu fyrsti jötunninn og forfaðir guðanna til?
Eitrið sem rann með ánum Élivágar harðnaði og varð að ís þegar það var komið langt frá upptökunum. Úðinn frá því fraus líka og varð að hrími. Þegar heitur gustur snerti hrímið bráðnaði það í dropa.
Úr dropunum kviknaði líf og til varð vera í mannsmynd: Ýmir. Hrímþursarnir kalla hann Aurgelmi. Ýmir svaf og svitnaði. Þá uxu karl og kona undan vinstri handarkrika hans.
Úr dropunum frá bráðnandi hríminu varð líka til kýrin Auðhumla. Mjólkin úr júgri hennar nærði Ými. Sjálf lifði kýrin á því að sleikja salta hrímsteina.
Að kvöldi fyrsta dagsins sem hún sleikti steinana kom mannshár í ljós. Daginn eftir birtist höfuð og á 3. degi kom allur líkaminn í ljós. Þetta var Búri. Sonarsynir hans voru Óðinn, Vili og Vé.
Heimildir þessarar sögu (2)Jötunninn og kýrin verða til
Hon sleikði hrímsteinana, er saltir váru
Kýrin sleikti salta hrímsteina.
„Gylfaginning“ 6. kafli
„Gylfaginning“Gylfaginning
„Vafþrúðnismál“Vafþrúðnismál


Um myndina
Jakob Sigurðsson „SÁM 66 — Auðumbla“ 1765–1766 Fallið úr höfundarétti Skoða upprunalegu myndina
Myndin var endurgerð í Super Nintendo-stíl eftir eldri mynd. Smelltu á hnappinn til að sjá eldri myndina.