1-1„Völuspá“ 3. erindi

Milli íss og elds

Hvað var til áður en jörð og himinn urðu til?

Í árdaga, sem Völuspá segir frá, var hvorki sandur né sjór né svalar öldur. Engin jörð var enn til og enginn himinn yfir henni. Hvergi óx gras. Aðeins Ginnungagap gapti vítt.

Í Gylfaginningu segir að Niflheimur hafi verið til löngu áður en jörðin varð til. Í miðju hans er brunnur sem heitir Hvergelmir. Árnar sem runnu úr honum fylltu gapið smám saman af ís og hrími.

Í suðri var Múspell, bjart og heitt eldríki. Þangað gátu ókunnugir ekki komið. Við landamærin stóð Surtur vörð með logandi sverð.

Norðan megin í gapinu hlóðust upp þykkur ís og hrím. Sunnan megin flugu neistar frá Múspelli. Frá Niflheimi næddi ískaldur gustur en í miðju gapinu var kyrrt, líkt og í logni.

Mynd: Milli íss og elds