5-4„Völuspá“ 53–54. erindi

Óðinn og Fenrisúlfur

Hvernig er Óðins hefnt?

Í Gylfaginningu gengur Óðinn til móts við Fenrisúlf. Hann ber gullhjálm á höfði og er klæddur brynju. Í hendi hefur hann spjótið Gungni. Gin úlfsins nær frá jörðu til himins.

Fenrisúlfur gleypir Óðin. Þar lætur Óðinn lífið. Sonur hans, Víðarr, gengur þegar fram og stígur öðrum fæti á neðri kjálka úlfsins.

Á þeim fæti er skór sem hefur verið í smíðum um langan aldur. Hann er gerður úr leðursneplum sem fólk hefur skorið af tám og hælum skóa sinna. Víðarr grípur með hendinni í efri kjálka úlfsins og rífur sundur gin hans. Við það deyr úlfurinn.

Í Völuspá er hefndinni lýst á annan hátt. Víðarr rekur sverð í úlfinn. Blaðið nær til hjartans. Þannig hefnir hann föður síns.

Skoða bardagasenu
Mynd: Óðinn og Fenrisúlfur