5-1„Gylfaginning“ 51. kafli

Vetur án sumars

Hvað gerist þegar ekkert sumar kemur á milli vetra?

Í Gylfaginningu hefjast fyrst miklir bardagar um allan heim. Þeir standa í 3 vetur. Græðgin nær tökum á fólki og bræður drepa hver annan. Feður og synir láta lífið. Fjölskylduböndin rofna.

Þá skellur fimbulvetur á. Snjónum drífur úr öllum áttum. Frostið er nístingskalt og vindarnir verða hvassir. Sólarljósið kemur að engu gagni. 3 vetur líða án þess að sumar komi á milli.

Loks gleypir úlfur sólina. Það er mikið áfall fyrir mannfólkið. Annar úlfur tekur tunglið. Stjörnurnar hverfa af himninum. Jörðin og fjöllin skjálfa ákaflega. Tré rifna upp með rótum og fjöll hrynja. Allir fjötrar og bönd slitna. Að lokum losnar sjálfur Fenrisúlfur.

Skoða bardagasenu
Mynd: Vetur án sumars