Kynnumst gyðjunum
Hvaða hlutverk hafa gyðjurnar?
Frigg er æðst gyðjanna. Hún á afar veglegan bústað sem heitir Fensalir. Eir er öðrum fremri í lækningum. Í Gylfaginningu er hún kölluð besti læknirinn og þannig lýst hæfni hennar til að lækna sjúkdóma og sár.
Fulla ber hárið laust og hefur gullband um höfuðið. Hún ber öskju Friggjar, annast skó hennar og tekur þátt í leynilegum ráðagerðum hennar. Sjöfn beinir hugum fólks að ástinni. Lofn sér til þess að karlar og konur fái að vera saman, jafnvel þótt samband þeirra hafi verið bannað.
Vár hlustar á eiða fólks og heit sem karlar og konur strengja hvort öðru. Hún refsar þeim sem rjúfa heit sín. Vör er svo vitur og spyr svo vandlega að ekkert verður fyrir henni falið. Gná er sendiboði Friggjar og fer um ýmsa heima. Hestur hennar getur farið bæði um loft og lög.
Heimildir þessarar sögu (2)Kynnumst gyðjunum
Hon er læknir beztr.
Hún er besti læknirinn.
„Gylfaginning“ 35. kafli
„Gylfaginning“Gylfaginning
„Eddubrot“Eddubrot


Um myndina
Carl Emil Doepler „Frigg by Doepler“ 1882 Fallið úr höfundarétti Skoða upprunalegu myndina
Myndin var endurgerð í Super Nintendo-stíl eftir eldri mynd. Smelltu á hnappinn til að sjá eldri myndina.