Þór án hamarsins
Hvernig barðist Þór án hamarsins?
Í Skáldskaparmálum segir frá því þegar jötunninn Geirröður tekur Loka höndum. Til að bjarga lífi sínu sver Loki að koma með Þór til hans án hamarsins og megingjarðanna, beltisins sem eykur afl hans. Þannig leggur Þór af stað með Loka til hallar jötunsins.
Á leiðinni varar tröllkonan Gríður Þór við Geirröði. Hún lánar honum megingjarðir, járnglófa og staf. Þegar Þór veður yfir á vex vatnið honum upp að öxlum. Ofar í ánni er dóttir Geirröðar að auka vatnsflauminn. Þór kastar steini í hana.
Þegar þeir koma á áfangastað er þeim vísað í skála. Þar lyftist stóllinn sem Þór situr á og þrýstir honum upp að loftinu. Undir stólnum eru dætur jötunsins. Þór spyrnir stafnum í loftbitann og þrýstir stólnum niður. Hryggir dætranna brotna.
Næst kastar Geirröður glóandi járnkúlu að Þór inni í stóra salnum. Þór grípur hana með járnglófunum. Jötunninn leitar skjóls bak við járnsúlu. Þór kastar kúlunni til baka. Hún fer í gegnum súluna, Geirröð og vegginn og stingst í jörðina fyrir utan.
Heimildir þessarar sögu (2)Þór án hamarsins
Þórr tók í móti með járngreipum
Þór greip hana með járnglófunum.
„Skáldskaparmál“ 26. kafli
„Skáldskaparmál“Skáldskaparmál
„Eddubrot“Eddubrot
