1-24„Skáldskaparmál“ 6. kafli

Óðinn stelur skáldamjöðnum

Hvernig kom Óðinn með mjöðinn heim?

Í Skáldskaparmálum segir frá því þegar Óðinn brýnir ljái 9 þræla sem eru að slá gras. Þrælana langar alla í brýnið. Þegar Óðinn kastar því upp í loftið reyna allir að grípa það. Í hamaganginum skera þeir hver annan á háls með ljáunum og deyja.

Óðinn kallar sig Bölverk og biður jötuninn Bauga um einn sopa af miðinum að launum fyrir vinnu sína. Allt sumarið vinnur hann á við 9 menn. En Suttungur, sem á mjöðinn, neitar að láta hann fá sopa. Óðinn lætur þá Bauga bora gat í klettafjallið með nafri. Sjálfur breytir hann sér í snák og skríður inn um gatið.

Eftir að hafa dvalið hjá Gunnlöðu í 3 nætur fær hann leyfi til að drekka 3 sopa af miðinum. Óðinn tæmir öll 3 kerin í 3 sopum. Síðan breytir hann sér í örn og flýgur burt. Suttungur verður líka að erni og eltir hann.

Í Ásgarði setja goðin ker út í garðinn. Óðinn spýtir miðinum í þau. Mjöðinn sem hann kemur þannig heim með gefur hann goðunum og þeim sem kunna að yrkja. Í Skáldskaparmálum er skáldskapur því líka kallaður „gjöf Óðins“.

Mynd: Óðinn stelur skáldamjöðnum