1-20„Gylfaginning“ 34. kafli

Hel og ríki hinna dauðu

Hvernig lítur Hel út, sem tekur við hinum dauðu?

Í Gylfaginningu er Hel dóttir Loka. Goðin frétta af spádómi um að hún og systkini hennar muni valda mikilli ógæfu. Þau láta því sækja börnin. Hel er kastað í Niflheim.

Hel fær vald yfir 9 heimum. Til hennar eru sendir þeir sem deyja úr sjúkdómum eða elli. Hún úthlutar þeim mat og húsnæði. Um bústað hennar eru afar háar girðingar og stór hlið.

Salurinn heitir Éljúðnir. Diskurinn hennar heitir Hungur og hnífur hennar Sultur. Líkami Heljar er hálfur blásvartur og hálfur á hörundslit. Hún er álút og ógurleg á svip. Í Grímnismálum segir að hún búi undir rót Yggdrasils.

Mynd: Hel og ríki hinna dauðu