1-18„Grímnismál“ 27–30. erindi

Hestar goðanna og ár heimsins

Hvernig komast goðin á dómstað?

Goðin fara daglega til dóms við askinn Yggdrasil. Í Grímnismálum eru taldir upp 10 hestar sem þau ríða þangað. Hver hestur á sér nafn, meðal annars Glaður, Gyllir og Glær.

Í Gylfaginningu eru nefndir 11 hestar. Þar á meðal er Sleipnir, hestur Óðins, sem hefur 8 fætur. Goðin fara yfir brúna Bifröst. Þar segir líka að hestur Baldurs hafi verið brenndur með húsbónda sínum.

Þór ríður engum hesti heldur veður yfir árnar. Þær heita Körmt og Örmt og svo eru 2 ár sem nefnast Kerlaugar. Í Grímnismálum logar brú goðanna og vatnið í hinum helgu ám sýður.

Árnar eiga líka hver sitt nafn. Síð og Víð eru meðal þeirra sem renna um lönd goðanna. Gjöll og Leiftur eru meðal þeirra sem falla nærri mönnum. Þaðan renna þær niður til Heljar, ríkis hinna dauðu.

Mynd: Hestar goðanna og ár heimsins