Gyðjurnar sem ráða örlögum manna
Hver ræður ævi manna?
Í Völuspá koma 3 vitrar meyjar frá brunninum undir trénu. Þær heita Urður, Verðandi og Skuld. Meyjarnar skera í viðarbúta og setja mönnum lög. Þær ákveða ævi þeirra og örlög.
Í Gylfaginningu koma meyjarnar 3 úr fögrum sal við brunninn undir trénu. Þær ráða ævi manna og eru kallaðar nornir. Nornirnar eru fleiri en þessar 3. Þær koma til hvers barns sem fæðist og ákveða ævi þess.
Sumar nornir eru af goðaættum, aðrar af álfaættum eða dvergaættum. Menn njóta mismikillar gæfu og lifa mislengi. Í Gylfaginningu er farsælt líf skýrt með því að góðar nornir hafi ráðið því. Ógæfusamt líf er verk illra norna.
Heimildir þessarar sögu (3)Gyðjurnar sem ráða örlögum manna
þær lög lögðu,
þær líf kuru
Meyjarnar settu lög og réðu ævi manna.
„Völuspá“ 20. erindi
„Völuspá“Völuspá
„Gylfaginning“Gylfaginning
„Fáfnismál“Fáfnismál


Um myndina
Ludwig Burger „Die Nornen Urd, Werdanda, Skuld, unter der Welteiche Yggdrasil by Ludwig Burger“ 1882 Fallið úr höfundarétti Skoða upprunalegu myndina
Myndin var endurgerð í Super Nintendo-stíl eftir eldri mynd. Smelltu á hnappinn til að sjá eldri myndina.