Guðirnir halda norður
Hvers vegna hélt Óðinn norður?
Formálinn hefst á því að Guð skapar himin og jörð. Smám saman hætta margir að fylgja boðum hans og að lokum gleyma þeir jafnvel nafni hans. Fólkið fer þá að virða fyrir sér jörðina og hreyfingar himintunglanna. Af því leiðir það að til séu máttugar verur sem stýri meðal annars himintunglunum.
Því næst kemur Þór til sögunnar, en hann er af konungsættinni í Tróju. Óðinn var afkomandi hans. Hann sá fyrir að í löndunum í norðri yrði nafn hans haft í meiri heiðri en nöfn konunganna. Hann lagði því af stað norður með stórum hópi karla og kvenna. Fólkinu sem þau hittu fannst þau líkjast guðum.
Hópurinn kemur til Svíþjóðar. Þetta fólk frá Asíu er kallað æsir. Þar sem þau dvelja ríkir friður og góð uppskera fæst. Fólkið trúir því að þetta sé mætti þeirra að þakka.
Óðinn valdi sér bústað í Svíþjóð. Þegar hann hélt lengra norður skildi hann son sinn eftir til að stjórna Noregi. Í formálanum segir að konungsættir Svíþjóðar og Noregs séu komnar af þessari ætt.
Heimildir þessarar sögu (1)Guðirnir halda norður
þá var þar ár ok friðr
Þar var ár og friður.
„Formáli“ 5. erindi
„Formáli“Prologus


Um myndina
Hugo Hamilton „Odens ankomst till Sverige och förening med Gylfe by Hugo Hamilton“ 1830 Fallið úr höfundarétti Skoða upprunalegu myndina
Myndin var endurgerð í Super Nintendo-stíl eftir eldri mynd. Smelltu á hnappinn til að sjá eldri myndina.