Hvað er Edda?
Hvaða bækur eru kallaðar Edda?
Tvær bækur ganga undir nafninu Edda: Eddukvæði og Snorra-Edda. Eddukvæði eru safn kvæða sem varðveist hafa frá fornu fari. Sum þeirra eru líka höfð orðrétt eftir í bók Snorra.
Brynjólfur Sveinsson, biskup í Skálholti, fann handritið með kvæðunum árið 1643. Sum kvæðin höfðu varðveist í heilu lagi en önnur aðeins að hluta. Þarna voru orð gömlu kvæðanna varðveitt saman á einum stað.
Snorra-Edda er hins vegar bók sem Snorri Sturluson skrifaði í óbundnu máli. Þar segir hann frá goðsögum en útskýrir líka sérstakt orðalag í skáldskap og hvernig kvæði eru ort. Hann vitnar í gömul kvæði og miðlar þannig þekkingu sem skáld þurfa að hafa.


Um myndina
Höfundur óþekktur „Codex Regius (GKS 2365 4to)“ 13. öld Fallið úr höfundarétti Skoða upprunalegu myndina
Myndin var endurgerð í Super Nintendo-stíl eftir eldri mynd. Smelltu á hnappinn til að sjá eldri myndina.