5-7„Völuspá“ 57–58. erindi

Heimurinn í ljósum logum

Hversu langt nær eldur Surts?

Í Gylfaginningu klofnar himinninn með miklum gný. Þar birtast þeir sem ætla að taka þátt í bardaganum. Fremstur fer Surtur. Eldur logar bæði fyrir framan hann og aftan og sverð hans skín skærar en sólin.

Eftir bardaga guðanna kastar Surtur eldi yfir jörðina. Eldurinn brennir allan heiminn. Í Völuspá er sagt frá því hvernig sólin sortnar. Jörðin sekkur í hafið og stjörnurnar sem ljómuðu á himninum hverfa.

Því næst lýsir Völuspá gufunni sem stígur upp af miklum krafti. Eldurinn magnast líka. Hitinn stígur svo hátt að hann nær að lokum til himinsins sjálfs. Þannig lítur heimsendir út: eldurinn rís frá jörðinni alla leið upp til himins.

Skoða bardagasenu
Mynd: Heimurinn í ljósum logum