5-11„Vafþrúðnismál“ 44–49. erindi
Fólkið sem lifði af í skóginum
Hvernig lifir fólkið sem kemst undan eldinum?
Í Vafþrúðnismálum er spurt hver lifi af þegar hinn mikli vetur skellur á mannfólkinu. Svarið er Líf og Lífþrasir. Þau fela sig í Hoddmímisholti og nærast á morgundögg.
Í Gylfaginningu fela þau sig í skóginum meðan eldur brennir heiminn. Þar lifa þau líka á morgundögg. Síðar eignast þau marga afkomendur. Frá þeim kemur fólkið sem byggir allan heiminn.
Ný kynslóð tekur líka við af sólinni. Í Vafþrúðnismálum eignast sólin dóttur áður en úlfurinn ræðst á hana. Þegar guðirnir deyja fer dóttirin sömu leið og móðir sín. Í Gylfaginningu er sagt að dóttirin sé ekki síður fögur en móðirin.
Heimildir þessarar sögu (2)Fólkið sem lifði af í skóginum
Frumtexti og þýðing
morgindöggvar
þau sér at mat hafa,
Þau nærast á morgundögg.
„Vafþrúðnismál“ 45. erindi
44–49. erindi
„Vafþrúðnismál“Vafþrúðnismál
53. kafli
„Gylfaginning“Gylfaginning
