3-7„Helgakviða Hundingsbana 1“ 1–58. erindi

Helgi kemur Sigrúnu til hjálpar

Hvernig bjargar Helgi Sigrúnu?

Nóttina sem Helgi fæddist komu nornirnar sem ráða örlögum manna. Þær spunnu og strengdu gullna þræði. Þær ákváðu að Helgi skyldi verða afburðakonungur. Þegar hann óx úr grasi felldi hann Hunding konung, aðeins 15 ára.

Sigrún steig af hesti sínum og sagði Helga frá hjónabandinu sem faðir hennar hafði ákveðið fyrir hana. Hún vildi ekki giftast manninum. Hún bað Helga að skora á hann til bardaga eða nema sig á brott. Helgi svaraði að áður skyldi barist, nema hann félli sjálfur.

Þegar Helgi og menn hans sigldu af stað gengu stórar öldur yfir þá. Helgi lét draga seglin enn hærra. Sigrún kom að ofan og bjargaði mönnunum og skipunum. Nálægt ströndinni köstuðu menn Helga og óvinir þeirra ókvæðisorðum hver að öðrum. Helgi ávítaði sína menn og sagði að bardagi hæfði þeim betur en marklaust orðaskak.

Brátt hófst mikil orrusta. Helgi barðist fremstur í flokki. Hjálmklæddar konur komu af himni ofan og vernduðu hann. Eftir sigurinn óskaði Sigrún Helga til hamingju með að hafa fellt óvinina. Hann hafði unnið Sigrúnu að brúði.

Mynd: Helgi kemur Sigrúnu til hjálpar