3-26„Atlakviða“ 35–46. erindi

Hefnd Guðrúnar

Hvernig hefndi Guðrún sín?

Í Atlamálum inum grænlensku leggur Guðrún á ráðin um að hefna bræðra sinna. Hún drepur synina sem hún á með Atla og gerir drykkjarskálar úr höfuðkúpum þeirra. Í þær hellir hún víni blönduðu blóði barnanna og gefur Atla að drekka.

Hjörtun steikir hún á teini og gefur honum að borða. Hún segir honum að þetta sé kálfakjöt. Atli skilur ekkert eftir. Þá segir Guðrún manni sínum hvað hún hefur gert. Síðar tekur hún höndum saman við son Högna og drepur Atla.

Í Atlakviðu gefur Guðrún honum hjörtun að borða með hunangi. Þegar hún segir að þetta hafi verið hjörtu sona þeirra brestur fólkið í grát. Sjálf grætur hún þó ekki. Atli er mjög drukkinn. Hann er óvopnaður og varar sig ekki á konu sinni.

Guðrún stingur Atla með sverði. Síðan kastar hún logandi viði inn um dyr hallarinnar. Fólkið inni verður eldinum að bráð. Þar brenna líka mennirnir sem voru komnir aftur eftir að hafa drepið Gunnar. Gamalt timbur hallarinnar brennur og hrynur.

Mynd: Hefnd Guðrúnar