2-28„Skáldskaparmál“ 24–25. kafli

Þór og Hrungnir

Hver kom Þór til hjálpar þegar hann lá fastur?

Hrungnir eltir Óðin á hesti og endar inni í Ásgarði. Þar drekkur hann í sölum goðanna og fer að hóta því að drepa þau. Þór er sóttur, en Hrungnir segir honum að það sé enginn heiður að drepa sig vopnlausan. Hann skorar á Þór að mæta sér í einvígi.

Jötnarnir búa sig undir einvígið með því að gera leirjötuninn Mökkurkálfa. Þegar að bardaganum kemur kastar Þór hamrinum og Hrungnir kastar brýni á móti. Vopnin rekast saman í loftinu og brýnið brotnar. Brot úr því festist í höfði Þórs. Hann fellur til jarðar.

Hamarinn mölvar höfuð Hrungnis. Jötunninn fellur ofan á Þór og annar fótur hans liggur yfir hálsi goðsins. Förunautur Þórs fellir leirjötuninn en getur ekki hreyft fót Hrungnis. Goðin koma á vettvang, en þau ráða heldur ekki við hann.

Þá kemur Magni, sonur Þórs. Hann er aðeins 3 nátta gamall, en þeytir fæti jötunsins af föður sínum. Þór stendur upp og fagnar syni sínum. Hann gefur Magna hestinn sem Hrungnir hafði átt.

Skoða bardagasenu
Mynd: Þór og Hrungnir