1-6„Völuspá“ 7–8. erindi

Gullöld guðanna

Hvað gerðu guðirnir á gullöldinni?

Í Gylfaginningu reistu guðirnir Ásgarð í miðjum heiminum. Þegar Óðinn sat í hásæti sínu, Hliðskjálf, sá hann um alla heima. Hann sá líka hvað mennirnir höfðust að.

Í Völuspá safnast guðirnir saman á Iðavelli. Þeir reistu há hof og komu sér upp afl í smiðju. Þeir smíðuðu sjálfir tangir og önnur verkfæri. Í túninu skemmtu þeir sér við tafl og þá skorti ekki gull.

Í Gylfaginningu unnu guðirnir málma, stein og tré. Þeir notuðu líka ríkulega af gulli. Á þessum tíma gerðu þeir bæði búsáhöld og reiðtygi úr gulli. Þess vegna er tíminn kallaður gullöld.

Í Völuspá varir gleði guðanna þar til 3 afar máttugar meyjar koma frá Jötunheimum. Í Gylfaginningu spilltu konur frá Jötunheimum líka gullöldinni.

Mynd: Gullöld guðanna