Galdraljóð Óðins
Hvaða mátt hafa ljóð Óðins?
Í Hávamálum telur Óðinn upp galdraljóðin sem hann kann. Það fyrsta heitir Hjálp og kemur að gagni í sorg og erfiðleikum. Með 3. ljóðinu slævir hann eggjar vopna óvinanna. Þegar hann syngur það 4. losna fjötrar af fótum hans og bönd af höndum.
Með 7. ljóðinu slekkur hann eld í sal þar sem félagar hans eru staddir. Með því 9. lægir hann vindinn til að verja skip og svæfir öldur hafsins. Það 12. getur hann notað á látinn mann sem hangir í tré. Þegar Óðinn ristir rúnir og litar þær fer maðurinn af stað og talar við hann.
Síðasta ljóðið, 18. ljóðið, er leyndarmál. Óðinn segist hvorki kenna það ungri konu né giftri. Þó eru undantekningar: konan sem heldur utan um hann eða systir hans mega læra það. Hann segir ekki hvaða máttur býr í ljóðinu. Best sé að hann einn kunni það.
Heimildir þessarar sögu (1)Galdraljóð Óðins
sprettr mér af fótum fjöturr,
en af höndum haft.
Fjötrarnir losna af fótum mér og böndin af höndum.
„Hávamál“ 149. erindi
„Hávamál“Hávamál
