Regnbogabrúin Bifröst
Hvert liggur regnbogabrúin?
Í Gylfaginningu reisa goðin brú frá jörðu til himins. Hún heitir Bifröst og menn kalla hana regnboga. Á henni eru 3 litir. Hún er afar sterk og smíðuð af meiri list og kunnáttu en önnur mannvirki.
Í Grímnismálum er Bifröst sögð fremsta allra brúa. Þar segir líka frá því hvernig Þór fer daglega til dóms við heimstréð. Hann veður yfir árnar. Í þessari lýsingu logar brú goðanna og vatnið í hinum helgu ám sýður.
Í Gylfaginningu segir líka hvað muni síðar verða um brúna. Þegar synir Múspells ríða yfir hana brotnar hún þótt sterk sé. Hestarnir synda þá yfir stórar ár og þannig halda synir Múspells áfram.
Heimildir þessarar sögu (2)Regnbogabrúin Bifröst
Hon er með þrimr litum ok mjök sterk
Á brúnni eru 3 litir og hún er afar sterk.
„Gylfaginning“ 13. kafli
„Gylfaginning“Gylfaginning
„Grímnismál“Grímnismál


Um myndina
Lorenz Frølich „Thor wades while the æsir ride by Frølich“ 1895 Fallið úr höfundarétti Skoða upprunalegu myndina
Myndin var endurgerð í Super Nintendo-stíl eftir eldri mynd. Smelltu á hnappinn til að sjá eldri myndina.