Útgarða-Loki
Í hverjum leikum reyndi Þórr afl sitt?
Þórr ok förunautar hans komu til hinnar miklu borgar Útgarðs. Fyrir Útgarða-Loka konungi keppti Loki við Loga í áti. Meðan Loki át allt kjötit, át hinn bæði beinin ok tréit í troginu.
Þjálfi hljóp kapp við svein þann, er Hugi hét. Hversu opt sem þeir hlupu, gat hann eigi náð honum. Í síðasta hlaupi kom Hugi til marks ok sneri aptr, áðr en Þjálfi hafði farit hálfa leið.
Þórr reyndi nú at drekka horn til botns. Hann drakk svá lengi sem honum vannst önd, en lítt lækkaði í horninu. Í 3. sinn lækkaði nokkut, en eigi gat hann tæmt þat. Þórr seldi þá hornið aptr.
Því næst skyldi hann lypta stórum, grám ketti. Þórr tók undir kvið hans ok hóf upp, en köttrinn létti aðeins einum fœti frá jörðu. Síðan glímdi hann við kerlinguna Elli, er verit hafði fóstra konungs. Hann neytti alls afls síns, en varð loks at falla á annat kné.
Heimildir þessarar sǫgu (1)Útgarða-Loki
Þórr féll á kné öðrum fæti.
Þórr fell á annat kné.
„Gylfaginning“ 46. kapítuli
„Gylfaginning“Gylfaginning


Um myndina
Lorenz Frølich „Thor lifts the cat“ 1872 Eigi lengr háð hǫfundarrétti Skoða upprunalega mynd
Myndin var teiknuð af nýju í hætti Super Famicom eptir eldri mynd. Með hnappinum má ok skoða eldri myndina.