5-13„Gylfaginning“ 54. kafli

Gylfi á sléttum velli

Hvað sagði Gylfi frá þegar höllin var horfin?

Þegar frásögn Gylfaginningar lýkur heyrir Gylfi mikinn gný úr öllum áttum. Hann lítur til hliðar og síðan í kringum sig. Þá stendur hann á sléttum velli. Hvergi sér hann höll eða borg.

Gylfi yfirgefur völlinn og heldur heim til lands síns. Þar segir hann frá því sem hann sá og heyrði. Þau sem hlusta segja svo öðrum frá. Þannig berst sagan af reynslu hans frá manni til manns.

Á meðan safnast æsirnir saman til að ráða ráðum sínum. Þeir rifja upp sögurnar sem þeir sögðu Gylfa. Síðan gefa þeir fólkinu og stöðunum þar hjá sér nöfn úr sögunum. Þannig ætla þeir að fá fólk í fjarlægri framtíð til að trúa því að mennirnir sem bera þessi nöfn séu sömu verur og guðirnir í sögunum.

Mynd: Gylfi á sléttum velli