Sakleysi sannað með sjóðandi vatni
Hvernig sannaði Guðrún sakleysi sitt með sjóðandi vatni?
Í Guðrúnarkviðu 3 segir þjónustukonan Herkja sögu sem vekur grunsemdir um Guðrúnu og Þjóðrek konung. Atli reiðist þegar hann heyrir að þau hafi legið saman í rekkju.
Guðrún sver við hvítan, helgan stein að hún hafi ekkert gert sem gefi tilefni til slíks gruns. Hún segir að þau konungur hafi aðeins sagt hvort öðru frá sorgum sínum. Hún biður líka um að Saxi konungur verði sóttur, því hann geti helgað ketilinn með sjóðandi vatninu. Margt fólk safnast saman í höllinni.
Guðrún stingur hendinni niður á botn ketilsins og tekur upp skínandi stein. Á hendinni er enginn bruni. Hún segir fólkinu að hið heilaga sjóðandi vatn hafi sannað sakleysi hennar. Atli gleðst þegar hann sér höndina.
Nú er Herkju skipað að gangast undir sömu raun. Hönd hennar brennur illa þegar hún stingur henni í sjóðandi vatnið. Síðan er Herkju varpað í fúla mýri. Kvæðinu lýkur á því að þannig hafi Guðrún fengið uppreisn fyrir þjáningar sínar.
Heimildir þessarar sögu (1)Sakleysi sannað með sjóðandi vatni
Sé nú, seggir,
sykn em ek orðin
Sjáið, góðir menn. Sakleysi mitt er sannað.
„Guðrúnarkviða 3“ 9. erindi
„Guðrúnarkviða 3“Guðrúnarkviða III
