Smiðurinn sem beið konu sinnar
Eftir hverjum beið Völundur?
Völundur og bræður hans hittu meyjar með svanshami við stöðuvatn. Bræðurnir tóku þær heim með sér. Þau bjuggu saman í 7 vetur. Síðan flugu meyjarnar burt í leit að bardögum og komu ekki aftur.
Hinir bræðurnir lögðu af stað á eftir meyjunum, en Völundur varð einn eftir heima. Hann smíðaði gullhringa með gimsteinum og þræddi þá upp á band úr trjáberki. Þannig beið hann áfram eftir að kona hans kæmi heim.
Þá læddust menn Níðuðar konungs inn um nótt. Þeir tóku einn hring með sér. Þegar Völundur kom heim taldi hann hringana og hélt að kona sín hefði komið aftur og tekið einn þeirra. En þegar hann vaknaði af svefni voru þungar hlekkjafestar um hendur hans og fætur.
Að ráði drottningar voru sinarnar við hné Völundar skornar í sundur. Hann var sendur út á eyju skammt frá landi. Þar var hann látinn smíða alls kyns dýrgripi fyrir konung.
Heimildir þessarar sögu (1)Smiðurinn sem beið konu sinnar
lukði hann alla
lind baugum vel;
Hann þræddi hringum á bandið þar til það var fullt.
„Völundarkviða“ 5. erindi
„Völundarkviða“Völundarkviða
