3-18„Skáldskaparmál“ 49. kafli

Hringurinn afhjúpar leyndarmálið

Hvaða leyndarmál afhjúpaði gullhringurinn?

Í Skáldskaparmálum fara Brynhildur og Guðrún að ánni til að lýsa hár sitt. Brynhildur gengur frá bakkanum út í ána. Hún segist ekki vilja fá vatnið úr hári Guðrúnar á höfuð sér. Maðurinn hennar sé nefnilega hugrakkari.

Guðrún fer á eftir henni út í ána. Hún svarar því til að enginn sé hugrakkari en maðurinn hennar. Hann hafi drepið bæði Fáfni og Regin. Brynhildur segir að það sé meira afrek að hafa riðið gegnum eldinn eins og Gunnar gerði. Sigurður hafi ekki haft hugrekki til þess.

Guðrún hlær. Síðan sýnir hún gullhringinn. Hún segir að sá sem gaf henni hringinn hafi komið í rekkju Brynhildar. Það var því Sigurður sem reið gegnum eldinn en ekki Gunnar.

Hún bendir líka á hringinn sem Brynhildur ber á hendi. Hann heitir Andvaranautur. Brynhildur þegir og gengur heim.

Mynd: Hringurinn afhjúpar leyndarmálið