6-5„Skáldskaparmál“ 39, 57–59. kapítuli

Kenningar manna

Hvernig má kalla menn nöfnum trjáa?

Í „Skáldskaparmálum“ er kennt, hvernig nefna má mann eptir verkum hans. Karl má kenna sem þann, er berst, siglir eða veiðir. Ekki má einungis nota þat, er hann hefir gert, heldr ok eignir hans ok ætt.

Einnig má kenna karla með nöfnum trjáa. Við nöfn sem askr eða hlynr eru sett orð um orrostur, skip eða auð. Þar er ok sýnt, hvernig kalla má karl sendi gulls.

Konur eru kenndar við klæði, gull ok gimsteina, er þær bera. Einnig má kenna þær við drykki, sem öl eða vín, er þær veita eða gefa öðrum. Ölker ok hlutir, er hæfa starfi konunnar, eru einnig hafðir í kenningum.

Trjáheiti eru einnig höfð í kenningum kvenna. Þá eru þó valin þau trjáheiti, er eru kvenkyns í máli. Konur eru ok kenndar við steina eða gimsteina. „Skáldskaparmál“ segja þat vera af því, at konur báru forðum steina á hálsi sér.

Mynd: Kenningar manna