Epli Iðunnar
Hvernig var Iðunn leyst ór haldi?
Óðinn, Loki ok Hænir suðu uxakjöt á ferð sinni. En kjötit varð eigi soit. Örn í tré kvað sik því valda. Hann bauðst til at láta kjötit soðna, ef þeir gæfi honum at eta fylli sína.
Örninn tók læri uxans ok báða bógana. Þá reiddist Loki ok laust hann með stöng. Stöngin varð föst við bak arnarins, en hendr Loka við stöngina, ok dró örninn hann með sér. Til þess at losna sór Loki at leiða Iðunni út með epli sín.
Loki laug því, at hann hefði fundit fágæt epli. Hann teygði Iðunni í skóg ok bað hana hafa sín epli með, til þess at bera þau saman. Þá kom jötunninn Þjazi í arnarham ok nam hana brott. Er goðin misstu Iðunnar, urðu þau gráhærð ok gömul.
Goðin hótuðu Loka. Þá fékk hann fálksham at láni hjá Freyju ok fór at leysa Iðunni. Hann brá henni í hnotarlíki, tók hana í klœr sér ok flaug heim. Goðin kveiktu í spónum hjá borgarveggnum. Örninn elti þá, en fiðr hans brann, ok drápu goðin hann.
Heimildir þessarar sǫgu (1)Epli Iðunnar
Þessa sögu segir Bragi Ægi í 2–3. kapítula *Skáldskaparmála*. Eigi er sagt, hvenær hon gerðist gagnvart öðrum tíðendum. Hér er hon sett á eftir sögunni af Fenri, svá at frásagnirnar fylgi hver annarri.
Brá Loki henni í hnotarlíki
Loki brá henni í hnotarlíki.
„Skáldskaparmál“ 3. kapítuli
„Skáldskaparmál“Skáldskaparmál


Um myndina
Harry George Theaker „Thiassi and Idunna by Harry George Theaker 1920“ 1920 Eigi lengr háð hǫfundarrétti Skoða upprunalega mynd
Myndin var teiknuð af nýju í hætti Super Famicom eptir eldri mynd. Með hnappinum má ok skoða eldri myndina.