1-15„Völuspá“ 2. vísa

Hvat eru heimarnir 9?

Hvat er sagt frá heimunum 9?

Völvan í Völuspá man jötna frá árdögum. Þeir höfðu forðum alit hana. Hon kveðst einnig muna 9 heima. Hon segir frá inum mæra, mikla viði fyrir mold neðan.

Í Vafþrúðnismálum spyr guðinn jötuninn Vafþrúðni, hví hann viti um örlög goðanna. Jötunninn svarar, at hann hafi farit um alla heima. Því geti hann sagt rétt frá leyndum tíðum goða ok jötna.

Heimarnir er jötunninn sótti heim eru einnig 9. För hans náði allt undir Niflhel. Í Gylfaginningu er sagt, hvert vondir menn fara eptir dauðann. Þeir fara ór heimi dauðra enn neðar til Niflheljar. Sá er kallaðr inn 9. heimr neðan.

Hvárki í þessu erindi Völuspár né í þessu svari Vafþrúðnismála er skrá með nöfnum allra heimanna.

Mynd: Hvat eru heimarnir 9?