Meyjar þær er ráða örlögum manna
Hverjar ráða ævi manna?
Í Völuspá koma 3 spakar meyjar frá brunninum undir trénu. Þær heita Urðr, Verðandi ok Skuld. Meyjarnar skera í tréspjöld. Þær setja mönnum lög ok ráða ævi þeira ok örlögum.
Í Gylfaginningu koma þessar 3 meyjar ór fögrum sal við brunninn undir trénu. Þær ráða ævi manna ok heita nornir. Fleiri nornir eru til en þessar 3. Þær koma til hvers barns er fæðist ok ráða ævi þess.
Sumar nornir eru af goðaætt, aðrar af álfaætt eða dvergaætt. Menn eiga misjafnlega gott líf ok lifa mislengi. Í Gylfaginningu er sagt, at góðar nornir veiti góða ævi, en illar nornir valdi óhamingju.
Heimildir þessarar sǫgu (3)Meyjar þær er ráða örlögum manna
þær lög lögðu,
þær líf kuru
Meyjarnar settu lög ok réðu ævi manna.
„Völuspá“ 20. vísa
„Völuspá“Völuspá
„Gylfaginning“Gylfaginning
„Fáfnismál“Fáfnismál


Um myndina
Ludwig Burger „Die Nornen Urd, Werdanda, Skuld, unter der Welteiche Yggdrasil by Ludwig Burger“ 1882 Eigi lengr háð hǫfundarrétti Skoða upprunalega mynd
Myndin var teiknuð af nýju í hætti Super Famicom eptir eldri mynd. Með hnappinum má ok skoða eldri myndina.